Miðvikudaginn 25. febrúar buðum við fólki í útgáfuhóf til að fagna nýútgefinni bók okkar ‘Systir mín sem enginn sér’. Höfundar bókarinnar, þær Kolbrún Tómasdóttir og Sigrún K. Valsdóttir, ávörpuðu gesti á staðnum. Þær töluðu um bókina, hvernig sagan varð til og hvaða merkingu hún hefur fyrir þær.

Matthildur Bjarnadóttir prestur við Vídalínskirkju í Garðabæ og verkefnastjóri Arnarins, minningar- og styrktarsjóðs var einnig með erindi. Hún ræddi hugmyndafræðina á bakvið efni bókarinnar og mikilvægi þess að grípa börn í sorg.

Veðrið setti svo sannarlega strik í reikninginn þennan dag en við viljum þakka öllum þeim sem sáu sér fært að mæta. Einnig þökkum við séra Matthildi kærlega fyrir sitt framtak og Sölku bókabúð fyrir mikla gestrisni í okkar garð. Silja Rut Thorlacius tók síðan fyrir okkur þessar fallegu myndir sem má sjá hér frá viðburðinum.


