Þjónusta
Gleym mér ei styður við foreldra sem missa börn á meðgöngu og í/eftir fæðingu með því að bjóða upp á ráðgjafasamtöl, jafningjastuðning, stuðningshópa, samverustundir og fræðslu. Einnig má finna þónokkra stuðningshópum á Facebook þar sem fólk deilir reynslu sinni.

Ráðgjafasamtal
Gleym mér ei býður upp á samtal fyrir foreldra sem misst hafa barn á meðgöngu, eftir fæðingu eða á fyrstu dögum/vikum eftir fæðingu barns. Einnig geta aðstandendur sóst eftir því að fá samtal.
Samtalið er tekið á jafningjagrundvelli og er ætlað að gefa upplýsingar um þann stuðning og þjónustu sem í boði er. Þarna er gott tækifæri fyrir fólk að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu.
Samtölin fara fram hjá okkur á fjórðu hæð í Lífsgæðasetrinu í Hafnarfirði eða í gegnum síma/fjarfundabúnað. Hægt er að óska eftir samtali með því að senda póst á gme@gme.is.
Stuðningshópastarf
Missir á 22. viku eða seinna
Landspítali Háskólasjúkrahús býður foreldrum, sem misst hafa barn eftir 22. viku meðgöngu, í stuðningshópastarf. Þarna koma saman pör og einstaklingar sem misst deila öll þeirri sárri reynslu að hafa misst barnið sitt. Iðulega eru tveir hópar skipulagðir, einn að vori og annar að hausti. Athugið að gott er að láta sex mánuði líða frá missinum áður en þú kemur í hópastarf. Nánari upplýsingar og skráning á bjarneyh@landspitali.is

Missir á viku 12 til 22
Gleym mér ei, í samstarfi við Sorgarmiðstöð, hefur boðið upp á stuðningshópastarf fyrir foreldra sem missa á viku 12 til 22, en aðeins er farið af stað með hópinn ef hann er fullskipaður. Ef þú hefur áhuga á stuðningshópastarfi, sendu umsókn hér. Haft verður samband ef full þátttaka fæst.
- Æskilegt er að um sex mánuðir séu liðnir frá missi þegar stuðningshópurinn fer af stað.
- Stuðningshópastarfið er iðulega í sex skipti og staðfestingargjald er 3.000 kr.
- Ef báðir foreldrar ætla að mæta verða þeir báðir að skrá sig.
- Staðfestingargjald á að greiða eftir að hópstjórar hafa staðfest skráningu með samtali.
- Nánari upplýsingar hjá gme@gme.is
Missir undir 12 vikum
Ekki er boðið upp á stuðningshópa fyrir þennan missi eins og er.
En við bjóðum upp á fræðslumyndband um missi undir 12 vikum og reynslusögu. Einnig hvetjum við hvetjum alla til að koma á erindið Nýlega misst hjá Sorgarmiðstöðinni.
Hægt er að óska eftir ráðgjafasamtali eða frekari upplýsingum hjá gme@gme.is.

Jafningjastuðningur
Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálf/ur.
Hægt er að óska eftir jafningjastuðningi á vef Sorgarmiðstöðvar eða með því að senda okkur tölvupóst á gme@gme.is.
Reynt er eftir bestu getu að para saman jafningja með svipaða reynslu. Misjafnt er hvernig stuðningurinn fer fram. Sumir ræða saman í síma á meðan aðrir hittast á kaffihúsi eða fara í göngutúr. Oftast er hist í 3-6 skipti, en báðir aðilar mega draga sig út úr því hvenær sem er.
Þau sem veita jafningjastuðning á vegum Gleym mér ei og Sorgarmiðstöðvar hafa misst barn á meðgöngu, í fæðingu eða á fyrstu dögum/vikum eftir fæðingu barns. Þau hafa sótt námskeið um jafningjastuðning og setið erindi um sorg og sorgarviðbrögð. Unnið er eftir siðareglum Sorgarmiðstöðvar og hafa allir jafningjar skrifað undir trúnaðaryfirlýsingu.
Gleym-mér-ei Facebook síður
Regnbogar: meðganga / uppeldi eftir missi
Hér getum við talað um allar tilfinningar sem koma upp og aðstæður sem geta fylgt því að eignast regnbogabörn og það að reyna aftur.
Stuðningshópur Fósturlát
Stuðningshópur sem er ætlaður fyrir foreldra sem hafa upplifað fósturlát.
Stuðningshópur
Stuðningshópur er ætlaður fyrir foreldra sem hafa misst barn/börn á meðgöngu og hafa þurft að fæða börnin sín andvana eða vitandi að þau eiga ekki lífsvon eða börnin hafa látist stuttu eftir fæðingu.
Stuðningshópur - Missir fyrir áratugum
Stuðningshópur þessi er ætlaður þeim sem misstu börn sín á meðgöngu, í fæðingu eða eftir fæðingu fyrir áratugum síðan
Stuðningshópur - Meðganga enduð vegna fósturgalla eða veikinda
Stuðningshópur þessi er ætlaður þeim sem hafa þurft að enda meðgöngu vegna fósturgalla eða veikinda
Stuðningshópur - Feður
Stuðningshópur þessi er ætlaður fyrir feður sem hafa misst barn/börn sem voru enn í móðurkvið, í fæðingu eða eftir fæðingu.