Síðastliðinn mánudag fengu Gleym mér ei konur, og fleiri dýrmætir sjálfboðaliðar, að taka þátt í því að pakka í Barnabónus kassana. Kassarnir eru verkefni sem Bónus fór með af stað á síðasta ári og er ætlað að styðja við bakið á barnafjölskyldum. Pakkarnir eru framleiddir á Íslandi og settir saman af sjálfboðaliðum, sem gefa vinnu sína til styrktar Gleym mér ei.

Gleym mér ei gefur 60-90 minningarkassa á ári til allra þeirra foreldra sem missa eftir tólftu viku meðgöngu. Okkur þykir því mjög táknrænt að vinnan á bakvið Barnabónus hjálpi til við að fjármagna fallegu minningarkassana okkar.
Það var því sannkallaður heiður að fá að skyggnast bakvið tjöldin og taka þátt í að pakka í kassana sem gefa til baka til fallega félagsins okkar.
Takk öll sem mættuð og enn og aftur takk fyrir okkur Bónus.


