Opin samverustund: Missir á meðgöngu fyrir mörgum árum – gömul sorg

Fjölmargir einstaklingar hafa borið harm sinn í brjósti í langan tíma eftir að hafa átt andvana barn á árum áður þegar viðurkenning samfélagsins á slíkum missi var lítil sem engin. Foreldrar sáu ekki barnið, því var ekki gefið nafn og það var jafnvel grafið á óþekktum stað. Fólk með slíka reynslu er hjartanlega velkomið, sem og aðstandendur, t.d. systkini. Umræður verða leiddar af Þórunni Pálsdóttur, Ljósmóður og ein af stofnendum Gleymmérei.

Um samverustundirnar
Gleymmérei styrktarfélag efnir til þematengdra samverustunda í Sorgarmiðstöðinni annan hvern fimmtudag í haust kl. 19.30-22.00. Hver stund er tileinkuð ákveðnum hópi foreldra sem misst hafa barn á meðgöngu eða fljótlega eftir fæðingu, og er ætlað að bjóða fólki með svipaða reynslu að koma saman og fá stuðning frá hvort öðru í öruggu umhverfi.

Samverustundirnar byggja á aðferðum og reynslu úr stuðningshópastarfi Gleymmérei og Sorgarmiðstöðvarinnar.

Þemun eru valin út frá umræðum sem skapast hafa í stuðningshópastarfi og í jafningjastuðningi Gleymmérei, sem og eftirspurnum sem borist hafa félaginu.

Date

12 okt 2023
Expired!

Time

7:30 pm - 10:00 pm

More Info

Read More

Location

Sorgarmiðstöð, Hjartað, 4 hæð
Suðurgata 41
Website
https://sorgarmidstod.is
Category
QR Code