Breytingar á lögum um sorgarleyfi

Í síðustu viku fór fram þriðja umræða um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi. Markmið breytingarinnar er að auka réttindi foreldra til sorgarleyfis. Frumvarpið var byggt á tillögum frá Gleym mér ei styrktarfélagi og Sorgarmiðstöðinni. Umræðan fór þannig að Alþingi samþykkti þetta frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingar á lögum um sorgarleyfi.

Breytingarnar felast í að foreldri sem missir maka sinn á rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði. En breytingarnar snúa einnig að þeim lögum um sorgarleyfi sem tóku gildi í byrjun árs 2023 og snúa að barnsmissi, andvanafæðingu og fósturláti. Þetta hefur verið stórt og mikið baráttumál hjá okkur í Gleym mér ei og því erum við mjög þakklátar.

Nú á foreldri sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði frá þeim degi sem fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á sér stað. Áður var tímabilið tveir mánuðir. Einnig á foreldri sem verið hefur í samfelldu starfi nú sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði frá þeim degi sem andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu. Áður var tímabilið þrír mánuðir. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum. Með þessum samþykktum eru því tekin stór framfaraskref í þágu syrgjenda.