Vávávává!!! Þessi dagur er alltaf jafn frábær og gefur öllum svo mikið. Við fundum fyrir allri hlýjunni, væntumþykjunni og við fundum hvernig þetta samfélag okkar er tilbúið að standa saman til að við getum haldið áfram að standa við bakið á öllu okkar fólki. Þið voruð mörg að hlaupa fyrir okkur þetta árið og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Það söfnuðust 11.461.388 krónur í gegnum 2053 áheit!

Við viljum einnig þakka öllum þeim sem hvöttu hlauparanna okkar áfram. Fólk sýndi vilja í verki með því að mæta á hvatningarstöðina okkar, deila Hlaupastyrks síðum hlaupara og auðvitað síðast en ekki síst með því að heita á alla þá frábæru einstaklinga sem hlupu fyrir okkur – takk fyrir ykkur öll!

Að lokum að þá var yndislegt að hitta ykkur öll í Tunglinu veislusal eftir hlaupið. Mæting var fram úr okkar björtustu vonum og við gerum ekki ráð fyrir neinu öðru en að þetta sé hefð sem er kominn til að vera. Það er svo magnað að finna fyrir samstöðunni og að ná að gleðjast saman eftir dag eins og þennan.

Enn og aftur takk!!!

