Árið 2023 hélt Gleym mér ei samverustundir þar sem fólk sem misst hefur barn á meðgöngu eða fljótlega eftir fæðingu kom saman. Þar var ein þessara stunda helguð fólki sem hafði misst fyrir mörgum árum, jafn vel áratugum. Þarna komu einstaklingar sem höfðu borið harm sinn í hljóði í langan tíma, en á árum áður var viðurkenning samfélagsins á slíkum missi lítil sem engin. Við fundum strax að það þurfti að gefa þessari sorg meira pláss og því fórum við af stað með sérstakt stuðningshópastarf fyrir sorg af þessu tagi á síðasta ári.
Sigríður Kristín Helgadóttir prestur í Fossvogsprestakalli leiddi umræður í hópastarfinu okkar árið 2025 og hún hafði meðal annars þetta að segja:
„Það er í gegnum þessa sameiginlegu reynslu sem græðslan á sér stað. Fólk er kannski að setjast niður í fyrsta sinn og ræða þetta. Við finnum samkenndina og finnum hvernig hægt er að spegla sig í fyrsta sinn og ræða þetta, í upplifun og tilfinningum annarra. Oft áttar fólk sig á því að tilfinningin sem það hefur burðast með, og jafnvel upplifað skömm vegna hennar, er ekkert til að skammast sín fyrir.„
Nú í annað sinn ætlum við að bjóða upp á hópastarf fyrir fólk sem missti á meðgöngu, eða fljótlega eftir fæðingu, fyrir árið 1995. Þetta verða sex kvöldstundir í Lífsgæðasetrinu (Suðurgötu 41) í Hafnarfirði sem munu allar hefjast klukkan 18:00 og standa yfir til klukkan 19:30.
Dagsetningarnar eru eftirfarandi:
7. apríl
14. apríl
21. apríl
28. apríl
5. maí
12. maí
Umræður verða leiddar af Dagbjörtu Eiríksdóttur. Dagbjört er klínískur sálgætir og hefur meðal annars unnið með missis foreldra á kvennadeild Landspítalans . Hún hefur reynst félaginu vel og flutti meðal annars fallegt erindi á minningarstundinni okkar 15. október síðastliðinn. Með henni verður Sigrún K. Valsdóttir sálgætir og starfsmaður hjá Gleym mér ei styrktarfélagi sem býr að þeirri sáru reynslu að hafa misst barn.
Hægt er að skrá sig hér

