Englaklæði
Brúðakjólar voru gefnir í verkefnið Englaklæði sem Jessica Leigh Andrésdóttir var í forsvari fyrir. Þar voru saumuð englaklæði fyrir börn úr brúðarkjólum og gefið á fæðingardeildir á landinu í 2020.
300 kassar minningarkassar 2017-2019
Frá árinu 2017 hefur Gleym mér ei gefið minningarkassa til foreldra sem missa á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu. Alls hafa verið gefnir um 100 kassar á ári og hver kassi kostar 25.000 kr.
Þegar gleði breytist í sorg
Endurútgáfa á bæklingum ,,Þegar gleði breytist í sorg” í samvinnu við Landspítala Háskólasjúkrahús, í 2020
,,Við vitum að sorgarferlið tekur lengri tíma en sem nemur þeim fáeinu dögum sem þú og maki þinn eruð í umsjá okkar sem störfum á kvennadeildum Landspítalans. Við vitum að í hönd fer erfiður tími þar sem þið, hvert og eitt, þurfið að takast á við sorg og sárar tilfinningar.
Það er einlæg von okkar að þessi bæklingur nýtist ykkur á þeirri vegferð sem þið eruð nú á, að hann verði ykkur stuðningur og leiðarvísir í sorg ykkar og söknuði. Það er enginn sem getur bægt frá ykkur þeirri sorg sem þið finnið fyrir. Bæklingurinn og sögur þeirra foreldra sem hér fylgja geta þó vonandi leitt huga ykkar að því að þið standið ekki ein. Það eru margir sem bæði geta veitt og vilja veita ykkur aðstoð við þessar erfiðu aðstæður”. (Úr bæklingum ,,Þegar gleði breytist í sorg”).
Lítið ljós
Barnabókin ,,Lítið ljós” eftir Særúnu Hlín Laufeyjardóttur í 2019.
Sorgarmiðstöð
2019 er ár stofnun sorgarmiðstöðvar sem er samvinnuverkefni grasrótarfélaga á sviði sorgarúrvinnslu. Þau eru: Ný dögun, Birta landssamtök, Ljónshjarta og Gleym mér ei. Markmiðið er að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra. Sorgarmiðstöð er góðgerðafélag sem byggir tilvist sína og starfsemi á styrkjum. Sorgarmiðstöð er öllum opin, syrgjendum sem fagfólki. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu; https://sorgarmidstod.is/.
,,Spörkin telja”
Árið 2019 var búið til fræðsluefni um minnkaðar fósturhreyfingar sem Gleym-mér-ei stóð fyrir í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, Heilsugæsluna og Landspítalann með stuðningi frá Heilbrigðisráðuneytinu og Landlæknisembættinu.
Spörkin Telja bæklingur smellið HÉR
Kristínarstofa
Árið 2018 gaf Gleym mér ei meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítala svefnsófa, hægindastól og gardínur á Kristínarstofu.
Myndavélar
Árið 2018 gaf GME tvær myndavélar til Fæðingarvaktar og Meðgöngu- og sængurlegudeildar LSH.
Föt
Árið 2018 gaf GME föt á andvana fædd börn í 3 stærðum.
Barnavagn og burðarrúm
Árið 2018 færði GME LSH barnavagn og burðarrúm að gjöf.
Árið 2021 færði GME LSH tvö rúm
Gjafir
Þann 12. október 2015 færði Gleym mér ei styrktarfélag meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítalans 2 sjúkrarúm og 2 náttborð í samstarfi við nemendur við Háskólann í Reykjavík.
Duftreitur fyrir fóstur
Félagið hefur staðið að endurbótum á Duftreit fyrir fóstur í Fossvogskirkjugarði og hefur sú vinna staðið síðan árið 2013. Vinnu var lokið árið 2017. Hönnuður breytinganna er Kristín María Sigþórsdóttir.
Þann 3. mars 2017 færði Styrktarfélagið Gleym mér ei Meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítalans að gjöf tvær fallegar bækur með myndum af duftreitnum fyrir fóstur í Fossvogskirkjugarði. Ljósmyndirnar tók Silja Rut Thorlacius sem einnig hannaði bókina.
Kælivöggur
Sumarið 2018 gaf GME útfarastofu Kirkjugarðanna kælivöggu. Það er dýrmætt fyrir foreldra að hafa þennan valkost að geta farið með barnið heim, fengið til sín nánustu aðstandendur og átt kveðjustund heima.
Í október 2014 færði Gleym mér ei styrkarfélag Landspítala, Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi kælivöggur fyrir andvana fædd börn og lagði fjöldi fólks málefninu lið. Minningarsjóður Magnúsar Brynjars Guðjónssonar gaf kælivögguna sem fór á FSA.
Englaforeldrar á Akranesi tóku þátt í söfnun fyrir kælivöggu sem gefin var á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Lín í kælivöggu
Landspítalinn gaf sérsaumað áklæði í kælivöggur á Landspítala, Akureyri og Akranes.
Lín Design gaf fallegan sængurfatnað í kælivöggur.
Minningarkassi
Gleym mér ei gefur foreldrum sem missa börn á meðgöngu
minningarkassa til þess að taka með sér heim.
Í september 2016 færði Gleym mér ei styrktarfélag Fæðingarvakt og Meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítalans 11 öskjur til að gera fótspor/handaför af andvana fæddum börnum. Foreldarar fá afhendar öskjurnar til minningar.